Hvað er regnbogabæn?Við þekkjum það að kveikja á aðventukertunum sunnudagana fyrir jól. Regnbogabænin gefur okkur ákveðna hliðstæðu fyrir páskaföstuna. Þessi hefð hefur verið að ryðja sér rúms í norsku kirkjunni undanfarin ár eftir að hjálparstarf kirkjunnar þar í landi tók þetta verkefni upp á sína arma.
Eins og á aðventunni á hvert kerti sinn dag og sína merkingu. Tilgangur verkefnisins er að tengja föstuna við réttlæti, umhyggju fyrir umhverfinu og von um betri framtíð. Hvernig geri ég þetta?Hér á þessari síðu finnið þið yfirlit yfir þá daga sem kveikt skal á kerti, umfjöllun um merkingu litanna og allt efni sem þarf til að nýta þetta í guðsþjónustunni. Eins eru tillögur að heimsmarkmiðum sem hægt er að tengja dagana við.
Það er mikilvægt að þið útvegið ykkur kerti í litum regnbogans og komið fyrir í kór kirkjunnar. Litirnir eru: rauður, appelsínugulur, gulur, grænn, ljósblár, kóngablár og fjólublár. Kveikið á réttum kertunum í upphafi guðsþjónustunnar og fáið gjarnan börn til að aðstoða við það. Eins og sjá má hér að neðan er hægt að fara mis langt í því að nýta efnið, þið getið ákveðið að nýta aðeins kertin og bænirnar ef það hentar ekki að gera meira. Þau sem vilja geta nýtt heimsmarkmiðin sem útgangspunkt í prédikun. |
|
Yfirlit yfir dagana |
Þema dagsins |
19. febrúar - Sunnudagur í föstuinngang
26. febrúar - Fyrsti sunnudagur í föstu 5. mars – Annar sunnudagur í föstu 12. mars – Þriðji sunnudagur í föstu 19. mars – Fjórði sunnudagur í föstu 26. mars – Fimmti sunnudagur í föstu 2. apríl - Pálmasunnudagur |
Kærleikur
Að nýta föstuna til jákvæðra breytingar í eigin lífi. Fólk á flótta Náttúran og Framtíðin Samstaða og samkennd Friður milli alls fólks Sorg og missir |